

Verkefnastjóri verkefna vegna innleiðingar vatnaáætlunar
Vilt þú vinna við verkefnastjórnun í alþjóðlegu samstarfi?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að sérfræðingi á sviði vatna- og fráveitumála sem hefur brennandi áhuga á því að vinna að úrbótum í fráveitumálum á Íslandi.
Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið er þátttakandi í LIFE-ICEWATER verkefni Umhverfis- og orkustofnunar sem miðar að innleiðingu vatnaáætlunar og þannig að úrbótum í meðferð vatns á Íslandi. Hægt er að lesa um verkefnið hér: https://www.icewater-life.is/
Verkefnastjóri hefur það hlutverk að hafa yfirumsjón með og fylgja eftir skuldbindingum ráðuneytisins vegna LIFE-ICEWATER verkefnisins. Verkefnastjóri verkefnastýrir samráðshópum sem felur í sér faglegt samstarf og eftirfylgni með vinnu starfs- og samráðshópa sem tengjast LIFE-ICEWATER verkefninu. Verkefnastjóra er einnig ætlað að stýra vinnuhópi um fráveitur.
Staða verkefnastjóra felur í sér samskipti við sérfræðinga og teymi ráðuneytisins auk samvinnu við önnur ráðuneyti, stofnanir og ýmsa hagaðila og alþjóðleg samskipti í kringum verkefnið.
-
Háskólamenntun með meistaragráðu sem nýtist í starfi
-
Þekking og reynsla í verkefnastjórnun
-
Þekking á sviði málaflokksins er kostur
-
Góð stafræn færni
-
Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
-
Mjög góð kunnátta í ensku
-
Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
-
Lausnamiðuð hugsun og geta til vinna undir álagi
-
Geta til að starfa vel í liðsheild
-
Mjög góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar













