

Verkefnastjóri á Akureyri
Við leitum að jákvæðum verkefnastjóra í okkar frábæra gæsluteymi í útibúi Securitas á Akureyri.
Í boði er starf þar sem tekist er á við skemmtileg og fjölbreytt verkefni sem felast meðal annars í umsjón núverandi og nýrra verkefna, úttektum á gæslustöðum, mönnun og umsjón vakta, starfsmannamálum, móttaka og þjálfun nýliða, stýring verkefna, gerð verklýsinga og innleiðingu á verklagi. Starfið er til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Ef þú...
- Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hefur reynslu af mönnun verkefna.
- Býrð yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt.
- Hefur reynslu af umsjón með verkefnum og verkstöðum ásamt daglegum rekstri.
- Býrð yfir metnað til að takast á við krefjandi verkefni.
- Hefur gott vald á íslensku, bæði í riti og ræðu.
...þá erum við kannski að leita að þér!
Við hvetjum öll kyn með hreint sakavottorð til að sækja um, umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst nk. Umsækjendur eru hvattir til að skila inn umsókn sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast.
Nánar upplýsingar um starfið veitir Jónas Björnsson, útibússtjóri, [email protected]
Í útibúi Securitas á Akureyri starfar kröftugur og samheldinn hópur sem telur um 40 manns sem í sameiningu veita viðskiptavinum Securitas framúrskarandi þjónustu og kappkosta við að auka öryggi þeirra.











