Securitas
Securitas
Securitas

Liðsauki í Tækniteymi á Reykjanesi

Viltu verða partur af skemmtilegum vinnustað?

Vegna aukinna umsvifa leitum við að liðsauka í okkar frábæra tækniteymi á Reykjanesinu. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði.

Ef þú...

  • hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • býrð yfir reynslu eða menntun í rafiðn er það kostur
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
  • býrð yfir góðri tölvuþekkingu

...þá gætum við verið að leita að þér!

Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 08:00-16:00 mánudaga - fimmtudags og stytting vinnuvikunnar á föstudögum.

Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst nk. og skulu umsóknir sendar inn hér.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjalti S. Hjaltason, útibússtjóri, [email protected]

Auglýsing birt5. ágúst 2025
Umsóknarfrestur20. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Iðavellir 13, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar