Vélar og verkfæri ehf.
Vélar og verkfæri ehf.

Rafmagnaður söluráðgjafi

Óskum eftir að ráða söluráðgjafa sem vill slást í hóp okkar úrvals sérfræðinga og ráðgjafa í þeim raf- og rafeindatækjum sem fyrirtækið selur. Starfið felst í ráðgjöf, sölu og þjónustu raf- og rafeindatækja sbr. aðgangskerfi (fyrir hótel, fyrirtæki og einstaklinga), dyrasíma, rafsegla, rafeindastýrðra læsinga og hurðaopnara o.fl.

Við leitum að aðila með reynslu af sölu á fyrirtækjamarkaði sem hefur metnað til að ná framúrskarandi árangri og/eða aðila með góðan tækni bakgrunn og þekkingu sem hefur áhuga á að tileinka sér færni sem vandaður söluráðgjafi.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

Heimsóknir til núverandi viðskiptavina og öflun nýrra viðskiptasambanda.

Tilboðsgerð og eftirfylgni.

Ráðgjöf og afgreiðsla viðskiptavina.

Umsjón með biluðum raf- og rafeindabúnaði ásamt viðgerðum.

Þjónusta og ráðgjöf við uppsettan búnað - After sales service

Önnur tengd og tilfallandi verkefni í sölu- og þjónustudeild.

Menntunar- og hæfniskröfur

Sveinspróf á sviði rafeindavirkjunar eða rafvirkjunar er kostur.

Haldgóð reynsla af sölumennsku á fyrirtækjamarkaði er mikill kostur.

Geta til að vinna sjálfstætt og skipulega, þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og góð framkoma.

Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli.

Þekking og áhugi á byggingavörumarkaði er kostur.

Góð tölvukunnátta.

Áhugi og geta til að takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni

Auglýsing birt1. ágúst 2025
Umsóknarfrestur17. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 1c, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RafeindavirkjunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar