Lamb Inn Öngulsstöðum
Lamb Inn Öngulsstöðum
Lamb Inn Öngulsstöðum

Verkefnastjóri rekstrar

Lamb Inn óskar eftir að ráða verkefnastjóra í rekstrartengdum verkefnum í sumar. Ráðningartími frá maí og fram í september / október, eða eftir nánara samkomulagi. Um fastan vinnutíma er að ræða á virkum dögum, en verkefnastjóri getur þó þurft að leysa af utan hans. Þá er möguleiki á einhverri helgarvinnu líka.

Nánari upplýsingar gefur Karl Jónsson á netfanginu [email protected] eða í síma 6916633 eftir kl. 16 á daginn.

Helstu verkefni og ábyrgð

Lamb Inn er 18 herbergja hótel staðsett á Öngulsstöðum 3 í Eyjafjarðarsveit, í um 11-12 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri. 

Verkefnastjóri rekstrar heldur utan um daglega starfsemi eins og mannauð, skipulag vakta, innkaup, samskipti við gesti og ferðaþjónustufyrirtæki, inn- og útritun gesta, skipulag þrifa og fleira skv. starfslýsingu.

Verkefnastjóri er yfirmaður á staðnum og sér um samskipti við starfsfólk og aðstoð við það. 

Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegu uppgjöri en ekki er gert ráð fyrir að viðkomandi sjái um fjármál eða bókhald að öðru leyti.

Verkefnastjóri sér um uppfærslu heimasíðu og samfélagsmiðla. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Tilvalið sumarstarf fyrir nemendur í ferðamálafræði eða ferðamálatengdu námi eða aðra sem vilja kynnast ferðaþjónustutengdri starfsemi. 

Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, vera skipulagður og lausnamiðaður og hafa ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. 

Auglýsing birt31. mars 2025
Umsóknarfrestur15. apríl 2025
Laun (á mánuði)550.000 - 650.000 kr.
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Öngulsstaðir 3 152861, 601 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar