Carbfix
Carbfix
Carbfix

Verkefnastjóri kolefnisförgunarverkefna

Carbfix leitar að stórhuga fólki sem vill leika lykilhlutverk í að stórauka kolefnisförgun á heimsvísu sem er forsenda þess að loftslagsmarkmið náist. Carbfix hefur þróað tæknilausn sem bindur koldíoxíð varanlega í bergi á innan við tveimur árum. Aðferðin hefur verið sannreynd sem hagkvæm og umhverfisvæn leið til að binda CO2 varanlega og koma þannig í veg fyrir áhrif þess á loftslagið. Þetta er einstakt tækifæri fyrir metnaðarfullar og drífandi manneskjur sem hugsa stórt og hafa ástríðu fyrir lausn loftslagsvandans.

Helstu verkefni

  • Leiða frumkvöðlaverkefni á sviði kolefnisförgunar frá undirbúningsstigi, gegnum hönnun og framkvæmd.
  • Gerð kostnaðaráætlana og verksamninga.
  • Samskipti við hagsmunaaðila.
  • Umsjón leyfismála.
  • Trygging aðfanga.

Hæfni

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Afburða samskipta- og skipulagshæfni.
  • Lausnamiðuð umbótahugsun.
  • Öguð og nákvæm vinnubrögð.
  • Haldbær reynsla af verkefnastjórnun, kostur ef jafnframt er fyrir hendi reynsla af verkefnastýringu frumkvöðlaverkefna.
  • Menntun á sviði iðn-, tækni-, verkfræði eða skyldum greinum.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2021. Unnið verður úr umsóknum frá 15. september.

Við hvetjum að sjálfsögðu öll kyn til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Carbfix teymið í netfanginu [email protected].

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Hvað er Carbfix?

Carbfix er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur þann tilgang að berjast gegn loftslagsvánni með því að stórauka kolefnisförgun á heimsvísu. Carbfix aðferðin felst í að fanga CO2 úr útblæstri í stað þess að sleppa því út í andrúmsloftið. Vatni með uppleystu CO2 – nokkurs konar sódavatni – er svo dælt ofan í berglög þar sem náttúrleg ferli umbreyta uppleysta koltvíoxíðinu í grjót á innan við tveimur árum. Sjá nánar á carbfix.com

Auglýsing birt6. september 2021
Umsóknarfrestur30. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar