Verkefnastjóri í vinnustaðaeftirlit
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa sem sérfræðingur í vinnustaðaeftirliti ASÍ. Starfið er fjölbreytt en felst meðal annars í undirbúningi, skipulagningu og framkvæmd á eftirliti á vinnustöðum skv. samningi ASÍ og SA þar af lútandi sbr. lög nr. 42/2010 um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. – sjá nánar www.skirteini.is
Starfið sem felur í sér mikla teymisvinnu er fjölbreytt og fer bæði fram úti á vettvangi sem og á skrifstofu. ASÍ leggur því áherslu á að umsækjandi brenni fyrir heilbrigðum vinnumarkaði, hafi faglegan metnað, sýni frumkvæði og geti starfað sjálfstætt en eigi jafnframt auðvelt með að vinna í teymi. Viðkomandi sé fær í mannlegum samskiptum og eigi auðvelt með að tjá sig í ræðu og riti. Um er að ræða fullt starf sem heyrir undir svið lögfræði- og vinnumarkaðsmála á skrifstofu ASÍ.
-
Góð færni í mannlegum samskiptum
Geta til að vinna undir álagi
Góð geta í ensku – frekari tungumálafærni kostur
Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.
Brennandi áhugi á málefnum vinnumarkaðarins
Menntun og/eða reynsla sem nýtist við skipulagningu, greiningu og úrvinnslu á ýmiskonar gögnum og upplýsingum
Reynsla af verkalýðs- og vinnumarkaðsmálum kostur