

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Festi leitar að verkefnastjóra í framkvæmdadeild fyrirtækisins til að sjá um fasteignaumsjón, rekstur og viðhald.
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi með menntun í byggingariðngrein/tæknifræði sem hefur reynslu eða þekkingu af umsjón með viðhaldi fasteigna.
Starfið felst m.a. í að taka á móti verkbeiðnum frá rekstrareiningum og sjá um að útdeila á þjónustuverktaka og eftirfylgni.
Menntunarkröfur og hæfniskröfur
- Iðnmenntun-, tækni- eða byggingafræðimenntun er æskileg.
- Þekking og reynsla af umsjón með viðhaldsframkvæmdum.
- Góð samskiptahæfni.
- Almenn tölvukunnátta.
Helstu þættir starfsins
- Umsjón og eftirlit með viðhaldsframkvæmdum og smærri nýframkvæmdum á fasteignum og rekstrareiningum félagsins, sem og með viðhaldi á rekstrartengdum búnaði í samráði við yfirmann.
- Gerð kostnaðar- og verkáætlana
- Eftirlit og umsjón með að verkum, eftirlit með að þau séu unnin í samræmi við samþykkt gögn, svo sem hönnunargögn, kostnaðar- og tímaáætlanir.
Í framkvæmdadeild Festi starfa 7 manns sem sjá um framkvæmdir Festi og rekstrarfélaga þess.
Festi er móðurfélag N1, Krónunnar, ELKO og Bakkans vöruhótels. Hjá Festi starfar öflugur hópur fagfólks á ýmsum sviðum sem þjónustar rekstrarfélögin í rekstri og framþróun.
Umsóknarfrestur er til 22.maí 2022
Nánari upplýsingar veitir Ívar Örn Þrastarson, [email protected]
Festi starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmiss konar heilsueflandi þjónusta í boði í Velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni og N1.











