Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Verkefnastjóri í fjármálateymi

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnastjóra í fjármálatengd verkefni á skrifstofu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Um framtíðarstarf er að ræða.

Ef þú ert lausnamiðaður og skipulagður einstaklingur sem brennur fyrir að leiða mál til lykta, þróa nýjar leiðir, hefur gaman af tölum og miðlun upplýsinga, þá hvetjum við þig til að lesa áfram.

Meginhlutverk verkefnastjórans er að stuðla að hagkvæmum rekstri og sinna faglegri þjónustu sem veitt er af fjármálateymi Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands í nánu samstarfi við rekstrarstjóra sviðsins.

Verkefnastjórinn hefur aðsetur á skrifstofu Heilbrigðisvísindasviðs í Læknagarði við Vatnsmýrarveg 16, ásamt öðru starfsfólki sviðsskrifstofu sem vinnur saman í teymum að margvíslegum stoðþjónustuverkefnum á sviði kennslu, rannsókna, mannauðsmála, markaðsmála og reksturs, auk fjármála.

Í stefnu Háskóla Íslands - HÍ26 - er áhersla lögð á skólann sem góðan vinnustað, að starfsumhverfi sé hvetjandi með vellíðan nemenda og starfsfólks að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að laða að metnaðarfullt fólk með fjölbreyttan bakgrunn. Stytting vinnuvikunnar hefur verið innleidd fyrir starfsfólk stoðþjónustu skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjárhagsáætlanir og frávikagreining
  • Kennsluáætlanir og uppgjör kennslu
  • Umsýsla við rannsóknastyrki
  • Samantekt á stjórnendaupplýsingum og stuðningur við stjórnendur
  • Upplýsingamiðlun varðandi fjármál, kennslu og rekstur
  • Ýmis önnur þróunar- og fjármálatengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum
  • Góð færni í Excel
  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
  • Þekking og reynsla af sambærilegum verkefnum er æskileg
  • Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund
  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur11. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Vatnsmýrarvegur 16, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar