Fastland ehf
Fastland ehf

Bókari - Ertu að útskrifast

Ert þú að útskrifast á næstunni og hefur brennandi áhuga á bókhaldi og rekstri?

Fastland er framsækið bókhaldsfyrirtæki sem veitir persónulega og faglega þjónustu í öllum hliðum fjármála fyrir atvinnurekstur. Við leggjum áherslu á skýra upplýsingagjöf til að styðja viðskiptavini okkar í daglegum rekstri, svo þeir geti einbeitt sér að sínum verkefnum með hugarró. Við erum stolt af því að veita ráðgjöf og þjónustu á mannamáli.

Við leitum að áhugasömum einstaklingi með metnað fyrir bókhaldi

Er þetta tækifærið sem þú hefur beðið eftir? Við leitum að nýútskrifuðum einstaklingi úr viðskiptafræði, MACC eða tengdum greinum sem vill öðlast dýrmæta reynslu á sviði bókhalds og uppgjörs. Ef þú hefur áhuga á að læra af reynslumiklu teymi og þróast í starfi, þá er þetta mögulega eitthvað fyrir þig!

Unnið er á DK bókhaldskerfi fyrir flesta viðskiptavini. Starfið er krefjandi og fjölbreytt þar sem unnið er í tímaskráningu og oft undir tímapressu vegna skilafresta Skattsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Færsla bókhalds
  • Afstemmingar bankareikninga, kreditkorta, skuldunauta, lánadrottna og opinberra gjalda
  • Virðisaukaskattsskil
  • Undirbúningur félaga fyrir uppgjör – afstemming reksturs og efnahagslykla
  • Önnur tilfallandi verkefni
  • Ber ábyrgð á færslu bókhalds, afstemmingum, vsk-skilum og undirbúningi fyrir uppgjör og skil á uppgjörsskjali til viðskiptastjóra 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunnmenntun í viðskiptafræði eða sambærilegu námi (skilyrði)
  • Þekking og reynsla af sambærilegu starfi (kostur)
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Reynsla af vinnu með DK bókhaldskerfi (kostur)
  • Góð þjónustulund og samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti 
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur16. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.Viðskiptafræðingur
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar