Norðursigling hf.
Norðursigling býður upp á fjölbreyttar ferðir í hvalaskoðun frá Húsavík. Norðursigling er fjölskyldufyrirtæki með heimahöfn á Húsavík og hefur boðið upp á hvalaskoðun og ævintýrasiglingar allt frá árinu 1995. Fyrirtækið er margverðlaunað fyrir frumkvöðlastarf í umhverfisvænni ferðaþjónustu og hefur vakið heimsathygli fyrir nýsköpun og varðveislu á norrænum menningararfi.
Hjá Norðursiglingu starfar samstilltur hópur fólks sem deilir mikilli ástríðu fyrir siglingum og ber mikla virðingu fyrir náttúru og dýrum. Norðlenskir skipstjórar með áratuga reynslu af sjósókn á svæðinu mynda skemmtilega blöndu með fjölþjóðlegum leiðsögumönnum. Innan fyrirtækisins hefur myndast gríðarleg þekking á umhverfi og lífríki flóans auk þess sem endurgerð og viðhald hins glæsilega flota fer að miklu leyti fram í Húsavíkurslipp, sem rekinn er af Norðursiglingu. Markmið Norðursiglingar hefur frá upphafi verið að efla sjálfbæra ferðaþjónustu og hefur fyrirtækið lagt metnað sinn í að endurnýja og viðhalda gömlum eikarskipum.
Bókahaldsfulltrúi / Gjaldkeri í 100% starf
Norðursigling leitar að talnaglöggum og áreiðanlegum einstakling til starfa í bókhald. Einstaklingur vinnur náið með aðalbókara fyrirtækisins sem og framkvæmdarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla bókhalds og afstemmingar.
- Reikningagerð og Innheimta
- Dagleg uppgjör
- Móttaka reikninga og samþykktarferli
- Gjaldkeri
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla í bókahaldi og notkun á dk hugbúnaði.
- Góð tölvukunnátta.
- Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur9. október 2024
Laun (á mánuði)11 - 22 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Staðsetning
Hafnarstétt 9, 640 Húsavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Starf á Fjármálasviði
Cargow Thorship
Birgðarstjóri á rekstrardeild
Vegagerðin
Þjónusta og tollskrárgerð
Cargow Thorship
Verkefnastjóri nemendaskrár
Háskólinn á Bifröst
Lögmaður með málflutningsréttindi
BPO innheimta
Áhugavert skrifstofustarf á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Hlutastarf við bókhald og uppgjör
Aalborg Portland
Flight Deck Coordinator
Air Atlanta Icelandic
Bakvinnsla á viðgerðarlager
ELKO
Sérfræðingur í þjálfunar- og skírteinamálum flugs
Samgöngustofa
Lögfræðingur
Útlendingastofnun
Sérfræðingur í greiðslulausnum
Straumur