ENDURMENNTUN HÍ
ENDURMENNTUN HÍ
ENDURMENNTUN HÍ

Verkefnastjóri í Endurmenntun HÍ

Endurmenntun HÍ leitar að öflugum og hugmyndaríkum verkefnastjóra í teymi sem vinnur að þróun og umsjón fræðslu og náms af öllum stærðum og gerðum. Starfið býður upp á ýmsa möguleika fyrir fólk sem hefur brennandi áhuga á að bæta samfélagið - með því að efla hæfni og þekkingu, tengja fólk og skapa tækifæri.

Við Endurmenntun HÍ starfar þéttur hópur við að efla hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi. Með öflugri nýsköpun, góðum tengslum við atvinnulífið og traustan grunn í Háskóla Íslands hefur Endurmenntun HÍ verið í fararbroddi í símenntun á Íslandi í 40 ár.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining á þörfum og eftirspurn varðandi fræðslu/nám
  • Nýsköpun og þróun fræðslu/náms
  • Umsjón og eftirfylgni fræðslu/náms
  • Samskipti og samstarf við nemendur, samstarfsaðila og tengiliði í atvinnulífinu
  • Önnur sérverkefni tengd starfinu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Reynsla af störfum við sambærileg verkefni, t.a.m. við umsjón, skipulag eða þróun fræðslu/náms er æskileg
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Reynsla af vinnu við stafrænt fræðsluefni er kostur
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Auglýsing birt18. október 2024
Umsóknarfrestur28. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Dunhagi 7, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar