
Verkefnastjóri framkvæmda
Stórt og öflugt fyrirtæki leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum verkefnastjóra með reynslu innan umferðaverkefna til að stýra verkefnum innan framkvæmdadeildar fyrirtækisins. Viðkomandi ber ábyrgð á fjárfestingaverkefnum frá hönnun og í gegnum allt ferlið, allt að framkvæmdum á verkstað.
Starfið felur í sér mikil samskipti við ráðgjafa, verktaka, hönnuði og aðra aðila sem koma að verkefnum og krefst þess að unnið sé samkvæmt ferlum um fjárfestingarverkefni sem fyrirtækið hefur sett sér. Gott skipulag er lykilatriði þar sem verkefni framkvæmdardeildar eru margvísleg og eiga það öll sameiginlegt að vera gríðarlega stór og spennandi.
Um er að ræða spennandi starf hjá framsæknu fyrirtæki sem setur fyrirtækjamenningu og þjónustu viðskiptavina í fyrsta sæti.
- Umsjón og ábyrgð á framkvæmdaverkefnum, allt frá hönnun til reksturs.
- Upplýsingamiðlun milli hagaðila sem koma að verkefninu.
- Útboð og öflun tilboða í samvinnu við innkaupadeild.
- Umsjón og ábyrgð á fjárfestingarverkefnum frá hönnun til framkvæmdar og afhendingar til reksturs.
- Samræming á störfum hönnuða, verktaka og utanumhald á gögnum sem snúa að daglegum rekstri verkefna.
- Ábyrgð á að samræma framkvæmdir verktaka.
- Verkefnismat við verklok framkvæmda.
- Þátttaka í verkefnum sem unnin eru þvert á svið fyrirtækisins.
- Utanumhald og uppfærsla á mánaðarskýrslum fjárfestingaverkefna.
- Háskólamenntun í verk- tækni-, og/eða byggingafræði eða sambærilegu er skilyrði.
- Reynsla af verkefnastjórn í mannvirkjagerð er kostur.
- Reynsla og haldbær kunnátta við áætlunargerð er kostur.
- Reynsla og þekking á BIM verkferlum er kostur.
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð.
- Góð samskiptahæfni.
- Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti.
Íslenska
Enska










