VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Verkefnastjórn og framkvæmdaráðgjöf byggingarframkvæmda

Langar þig að stuðla að uppbyggingu í samfélaginu? Við leitum að metnaðarfullum verkfræðingi, tæknifræðingi eða byggingafræðingi til starfa til við verkefnastjórnun, framkvæmdaeftirlit og framkvæmdaráðgjöf vegna húsbygginga og annarra byggingarframkvæmda.

Um starfið

Sem sérfræðingur á sviði verkefnastjórnunar byggingarframkvæmda munt þú vinna við:

  • Verkefnastjórnun: Undirbúning og stjórnum byggingarframkvæmda.
  • Framkvæmdaeftirlit: Eftirlit með verklegum framkvæmdum, eftirfylgni með áætlunum, úttektir á verkstað o.fl.
  • Áætlanagerð: Gerð kostnaðaráætlana, líftímakostnaðargreininga (LCC), lífsferilsgreininga (LCA), orkuútreikninga, endurnotkunaráætlana o.fl.
  • Umhverfisvottanir: Úttektir, eftirfylgni, gerð skilagagna og önnur ráðgjöf vegna Svansvottunar.
  • Byggingareðlisfræði og rakavarnir: Úttektir og tæknilegar úrlausnir vegna myglu- og rakavarna.
  • Ýmis framkvæmdaráðgjöf og skýrslugerð: Þarfagreiningar, ástandsúttektir, viðhaldsáætlanir, gerð útboðsgagna, samningagerð o.m.fl.

Hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi eiginleika og færni:

  • Menntun: Háskólamenntun á sviði verkfræði, tæknifræði eða byggingafræði. Sveinspróf eða iðnmenntun á sviði húsbygginga er kostur.
  • Reynsla: Starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg, en ekki skilyrði.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð: Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Samskipahæfni: Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
  • Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku, bæði töluðu og rituðu máli.

Hvað bjóðum við

Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:

  • Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
  • Tækifæri til að vinna að mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
  • Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Líflegt félagsstarf.

Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/

Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið [email protected], merktar Verkefnastjórnun.

Auglýsing birt23. október 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.IðnfræðingurPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar