

Verkefnastjóri fjárfestinga
Isavia leitar eftir kraftmiklum verkefnastjóra fjárfestinga á Keflavíkurflugvelli. Verkefnastjóri stýrir fjárfestingaverkefnum frá hönnun til afhendingar og reksturs. Ber ábyrgð á að innkaup, hönnun og framkvæmd sé í samræmi við kröfur eigenda hverju sinni og að rýni á verklagi fari fram í lok verkefna. Verkefnin eru af ýmsum toga og geta verið allt frá að vera minniháttar breytingar, upp í að vera stór og flókin fjárfestingarverkefni. Flest verkefnin eru í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í krefjandi umhverfi þar sem huga verður vel að samspili framkvæmda og reksturs. Það er því mikilvægt að hafa ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Verkefnastjóri kemur að þróun ferla, samræmingu og hefur áhrif á hvernig eininginn starfar bæði innan einingarinnar, með öðrum einingum Isavia og utanaðkomandi aðilum. Verkefnastjóri sér um að aðstoða aðra verkefnastjóra í stærri fjárfestingaverkefnum þegar kemur að því að skrifa útboðsgögn og halda utan um og ritstýra þeim.
Flugvallarþróun og uppbygging er eining sem tilheyrir Viðskipta-og þróunarsviði Isavia og annast uppbyggingu á innviðum og tæknibúnaði á Keflavíkurflugvelli. Einingin skiptist í þróunardeild, verkfræðideild og framkvæmdadeild og er verkefnadrifin.











