
Verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet
Vertonet stendur fyrir átaksverkefni til þess að auka nýliðun kvenna í upplýsingatækni en nýlega skrifuðu 30 fyrirtæki, menntastofnanir og samtök undir viljayfirlýsingu þar sem þau heita því að vinna að þessu markmiði Vertonet.
Yfirlýsingunni var svo fylgt eftir með skuldbindingu um að fjármagna verkefnið. Fjármögnunin er komin í höfn og því leitar Vertonet nú eftir verkefnastjóra til að leiða verkefnið og hvetja fleiri konur til að velja tækni.
Starfið er tímabundið hlutastarf og er vinnutími sveigjanlegur.
Leitað er að einstaklingi með mikla ástríðu fyrir málstaðnum, framtakssemi og reynslu af því að stýra verkefnum þvert á ólíka hópa.
Viðkomandi mun starfa í nánu samstarfi við tengiliði helstu upplýsingatæknifyrirtækja og menntastofnana á Íslandi sem mynda stýrihóp verkefnisins.
Verkefnið mun hefjast í janúar 2023 og standa yfir sex mánuði með möguleika á framlengingu. Þetta er frábært tækifæri til að styrkja tengslanetið og láta gott af sér leiða.
Hljómar þetta vel fyrir þig?
Ef svo er hvetjum við þig til þess að sækja um. Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Gætt verður fyllsta trúnaðar í meðhöndlun allra umsókna.
Umsóknarfrestur er 4. desember 2022. Nánari upplýsingar veitir Hörn Valdimarsdóttir ([email protected]).











