
Pósturinn
Pósturinn er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í dreifingalausnum en dreifikerfi Póstsins nær um allt land og allan heim. Höfuðstöðvar Póstsins eru í Reykjavík en fyrirtækið starfrækir starfsstöðvar víðsvegar um landið til að þjónusta Íslendinga sem allra best.
Við hjá Póstinum erum lausnamiðað keppnisfólk og tökum fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum hvað varðar öflugar og hraðar dreifingalausnir sem standast kröfur viðskiptavinarins.
Hjá okkur er lagt mikið uppúr liðsheild, þjálfun mannauðs og góðum starfsanda.

Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Pósturinn leitar að öflugum verkefnastjóra til starfa í upplýsingatækni. Viðkomandi stýrir verkefnum sem snúa að stafrænni umbreytingu hjá Póstinum. Verkefnastjóri er staðsettur á skrifstofum Póstsins í Reykjavík og heyrir undir forstöðumann tæknireksturs og þróunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón og stýring á verkefnum innan Póstsins
- Ábyrgð á þarfagreiningu, skipulagi, framvindu og lúkningu verkefna
- Upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsfólks
- Umsjón með forgangsröðun verkefna sem snúa að stafrænni umbreytingu
- Umsjón með innleiðingarferlum stafrænna lausna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Reynsla af ferlastjórnun er kostur
- Reynsla af notkun á Jira og Confluence er kostur
- Reynsla af verkefnum sem tengjast innleiðingu stafrænna lausna er kostur
- Áhugi og þekking á hugbúnaðarþróun er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi sem og hæfni til að vinna í teymi
Auglýsing birt15. október 2026
Umsóknarfrestur26. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (9)

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Aðstoðarvöruhússtjóri Garra
Garri

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Microsoft ráðgjafi
KPMG á Íslandi

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali

AI Solutions Engineer
atNorth

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Senior QA Analyst
Fenris Creations