

Blönduós - Starfsmaður í afgreiðslu og dreifingu
Pósturinn á Blönduósi leitar að starfsmanni í afgreiðslu og dreifingu. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni eins og móttöku og afhendingu sendinga, afgreiðslu, akstri og útburði.
Vinnutími er alla virka daga kl. 7-15 eða 8-16.
Hæfniskröfur:
- Íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Bílpróf er skilyrði
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
- Frumkvæði og jákvætt hugarfar
- Almenn tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 20. október. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Erla Ísafold Sigurðardóttir rekstrarstjóri, [email protected]
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í fyrirrúmi. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálarnar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Íslenska
Enska










