
Sunnuhlíð
Markmið Sunnuhlíðar er að vera ávallt í fremstu röð hjúkrunarheimila í landinu hvað varðar þjónustu við íbúa, aðbúnað þeirra og starfsfólks.
Áhersla er lögð á virðingu fyrir einstaklingunum og að skapa heimilislegt andrúmsloft með vellíðan og öryggi hvers heimilismanns að leiðarljósi.
HJÚKRUN-UMHYGGJA-UMÖNNUN

Bílstjóri með meirapróf óskast í dagdvöl Sunnuhlíðar
Bílstjóri óskast á dagdeild Sunnuhlíðar
Dagdeild Sunnuhlíðar óskar eftir jákvæðum og traustum bílstjóra til að sjá um akstur þjónustuþega milli heimilis þeirra og dagdeildarinnar í Sunnuhlíð.
Þjónustuþegar eru sóttir á heimili sín að morgni og ekið aftur heim síðdegis alla virka daga.
Helstu verkefni
- Aka þjónustuþegum til og frá dagdeild Sunnuhlíðar alla virka daga.
- Tryggja öryggi farþega í hvívetna
- Halda ökutæki hreinu, snyrtilegu og í góðu ástandi.
- Tryggja að ökutæki sé ávallt hæft til aksturs og uppfylli kröfur um öryggi og búnað.
- Sjá um reglubundið viðhald ökutækis, svo sem að fara með það í smurningu, fylgjast með dekkjum og sinna öðru eðlilegu viðhaldi.
Hæfniskröfur
- Meirapróf.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar.
- Ábyrgð, stundvísi og áreiðanleiki.
- Færni í að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði.
Við leitum að einstaklingi sem er traustur, kurteis og jákvæður og hefur áhuga á að starfa með eldra fólki.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst en eigi síðar en 1. nóvember.
Allar frekari upplýsingar um starfið má fá hjá Elísu Finnsdóttur forstöðumanni dagdvalar í Sunnuhlíð.
Auglýsing birt6. október 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kópavogsbraut 1C, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Útkeyrsla / lager
Icetransport

Helgarstarf í áfyllingu - Akranes
Ölgerðin

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Vinna á dælubíl / Pump truck operator
Stíflutækni

Lagerstarfsmaður með meirapróf óskast
AB Varahlutir

Bílstjóri á dagrútu DHL í Garðabæ
DHL Express Iceland ehf

skóla og ferðaþjónustu akstur í árborg
GTS ehf

Heimsendingar á kvöldin - tímabundið starf
Dropp

Bílstjóri - Lagerstarfsmaður
Fiskikóngurinn ehf.

Tímabundin störf í nóvember og desember.
Dropp

meiraprófs bílsstjóri
Íslandsfrakt ehf.

Bílstjóri til útkeyrslu - C-réttindi
Ó.Johnson & Kaaber