Skeljungur ehf
Skeljungur ehf
Skeljungur ehf

Akureyri - Olíubílstjóri

Vegna aukinna umsvifa óskar Skeljungur eftir að ráða meiraprófsbílstjóra til starfa á norðurlandi til að sinna afgreiðslu, dælingu og dreifingu eldsneytis. Ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem falla undir starfssvið dreifingar Skeljungs.

Skeljungur sér um dreifingu, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíu, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda. Þjónusta og sala til stórnotenda, til útgerða, í flug og verktöku er einnighluti af starfseminni.

Hjá Skeljungi starfar fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri. Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind Skeljungs. Við berum hag starfsmanna fyrir brjósti og viljum vera í fremstu röð hvað varðar réttindi þeirra, öryggi og starfsumhverfi. Í okkar daglega starfi vinnum við eftir kjarnagildum okkar, við erum jákvæði, við erum tilbúin í breytingar og við erum metnaðarfull.

Menntunar- og hæfniskröfur

Meirapróf C og CE er skilyrði

ADR réttindi

Sjálfstæð og öguð vinnubrögð

Reynsla af akstri er kostur

Góð íslenskukunnátta æskileg

Samviskusemi, stundvísi og reglusemi

Umsóknarfrestur er til og með 22 okt. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Árni Karelsson Svæðisstjóri á Akureyri sími: 444-3000 /netfang: [email protected]

Auglýsing birt6. október 2026
Umsóknarfrestur22. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar