
Teitur
Teitur er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í ferðaþjónustu, stofnað árið 1963.
Fyrirtækið rekur yfir 100 hópferðabíla í öllum stærðarflokkum og þjónustar bæði erlenda og innlenda farþega.
Árið 2024 tók Teitur á móti um 63.000 ferðamönnum í 1.800 hópum, aðallega frá Asíu, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bretlandi og Norðurlöndunum. Þá ferðast einnig árlega fjöldi Íslendinga með fyrirtækinu, meðal annars í hópferðum, skólaakstri og ferðaþjónustu fatlaðra og eldri borgara.
Verkstæði fyrirtækisins er vel búið og uppfyllir allar nútímakröfur, þar á meðal með fullkomnum bilanagreiningarbúnaði.
Einkunnarorð Teits eru þjónusta, traust og ánægja, og fyrirtækið hefur verið á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2013.

Ábyrgur bílstjóri óskast í akstur skólabíla
Við leitum að ábyrgum, þjónustuliprum og traustum einstaklingi til starfa við skólaakstur á höfuðborgarsvæðinu.
Starfið felst í akstri nemenda til og frá skóla, með áherslu á öryggi, stundvísi og jákvæð samskipti. Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki og gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að skapa öruggt og traust umhverfi fyrir börn og ungmenni í daglegum skólaakstri.
Ferilskrá og umsóknir eiga vinsamlegast að berast í gegnum Alfreð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skólaakstur samkvæmt akstursáætlun
- Að tryggja öryggi og velferð farþega
- Daglegt eftirlit með ökutæki og búnaði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf (D/DE) og 95 í ökuskírteini
- Reynsla af akstri stærri hópferðabíla æskileg
- Hreint sakavottorð
- Jákvæðni og áreiðanleiki
- Fagmennska og góð framkoma
- Hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
- Sjálfstæði í starfi
- Íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt25. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 22, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMeirapróf DSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Starfsfólk óskast
Hreinsitækni ehf.

Bílstjóri með C1 réttindi
Flutningaþjónustan ehf.

Meiraprófsbílstjóri
S.S. verktak ehf

Rútubílstjóri - hlutastarf
Clubbus ehf.

Bílstjóri í þjónustu við fatlaða og eldri borgara
Teitur

Sendibílstjóri
Bifreiðastöð Þórðar ehf

Bílstjóri / Driver
Bus4u Iceland

Bílstjóri
Tandur hf.

Heimsendingar á kvöldin
Dropp

Bílstjóra með próf á vörubíl og dráttarbíl
Loftorka Reykjavík ehf.

Bílstjóri - Sölufólk Sómi
Sómi

Drivers for Northern Lights Tours
BusTravel Iceland ehf.