
Teitur
Teitur er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í ferðaþjónustu, stofnað árið 1963.
Fyrirtækið rekur yfir 100 hópferðabíla í öllum stærðarflokkum og þjónustar bæði erlenda og innlenda farþega.
Árið 2024 tók Teitur á móti um 63.000 ferðamönnum í 1.800 hópum, aðallega frá Asíu, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bretlandi og Norðurlöndunum. Þá ferðast einnig árlega fjöldi Íslendinga með fyrirtækinu, meðal annars í hópferðum, skólaakstri og ferðaþjónustu fatlaðra og eldri borgara.
Verkstæði fyrirtækisins er vel búið og uppfyllir allar nútímakröfur, þar á meðal með fullkomnum bilanagreiningarbúnaði.
Einkunnarorð Teits eru þjónusta, traust og ánægja, og fyrirtækið hefur verið á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2013.

Bifvélavirki eða maður vanur viðgerðum á bifreiðum.
Teitur leitast eftir að ráða starfsmann á verkstæði fyrirtækisins að Dalvegi 22.
Starfið snýr að viðgerðum hópferðabíla fyrirtækisins sem flestir eru af gerðunum Scania, Setra og Mercedes Bens auk minni bíla sem eru Transit og Sprinter. Starfsmaðurinn þarf að kunna vel til verka, geta unnið sjálfstætt og með öðrum. Í dag eru 7 manns starfandi á verkstæðinu og verkefnastaða er mjög góð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Bilanagreiningar.
Almennar viðgerðir.
Viðgerðir tengdar rafbúnaði.
Skráning á viðhaldi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Sveinspróf í bifvélavirkjun og/eða reynsla af viðgerðum á stórum bifreiðum.
Mjög góð þekking og færni í bilanagreiningum.
Góð tölvukunnátta.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, metnaður.
Frumkvæði og fagmennska í starfi.
Rík þjónustulund og samstarfshæfni.
Auglýsing birt9. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaValkvætt
PólskaValkvætt
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Dalvegur 22, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Multivac Tæknimaður
Multivac ehf

Tæknimaður óskast
Lyftulausnir ehf.

Bifreiðasmiður á bílaverkstæði Hölds á Akureyri
Höldur

Bifvélavirki á bílaverkstæði Hölds á Akureyri
Höldur

Malbiksframleiðsla, blöndun og viðhald -Akureyri
Colas Ísland ehf.

Mechanic / Bifvélavirki
Campeasy

Starfsmaður á verkstæði
Malbikstöðin

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Við leitum að öflugum rafvirkjum!
Rafmiðlun

Viðgerðarmenn og vélstjórar á þjónustuverkstæði
VHE

Verkstjóri á bílaverkstæði - Keflavíkurflugvelli
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun