Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjóri á deild byggingarmála

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur auglýsir eftir verkefnastjórum til starfa á deild byggingarmála á skrifstofu skipulags- og byggingarmála. Um er að ræða fjölbreytt starf í skapandi og faglegu starfsumhverfi þar sem teymisvinna, nýsköpun og framsækni er höfð að leiðarljósi. Á skrifstofunni starfar kraftmikið teymi með brennandi áhuga á byggingarmálum og borgarþróun. Verkefnin eru fjölbreytt og snúa að umfjöllun byggingarleyfisumsókna, fyrirspurna ásamt yfirferð á aðaluppdráttum og öðrum hönnunargögnum. Við leitum að einstaklingum í teymið okkar sem hafa brennandi áhuga á byggingarmálum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirferð aðaluppdrátta, umsókna og fyrirspurna sem berast deildinni.
  • Veita ráðgjöf og leiðbeiningar til fagfólks, hönnuða og almennings sem varða byggingarmál, byggingarleyfisumsóknir og yfirferð aðaluppdrátta sem leggja á fyrir afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og/eða fundi skipulagsráðs.
  • Svara fyrirspurnum varðandi athugasemdir sem gerðar hafa verið við mál á afgreiðslufundum og leiðbeina viðskiptavinum embættisins eftir þörfum.
  • Þátttaka í afgreiðslufundum byggingarfulltrúa, afgreiðsla mála á fundunum og vinna þeim tengdum.
  • Ýmis verkefni tengd byggingarmálum borgarinnar sem falla undir verksvið skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í arkitektúr, byggingarfræði, tæknifræði eða verkfræði.
  • Löggilding hönnuða á viðeigandi starfssviði.
  • Reynsla í yfirferð og gerð aðaluppdrátta.
  • Metnaður og vilji til að takast á við mismunandi, fjölbreytt og krefjandi verkefni.
  • Skipulagshæfni, nákvæmni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Tölvufærni í notkun á algengum hugbúnaði Word, Excel og Outlook, skjalakerfum og geta til að tileinka sér notkun nýrra kerfa.
  • Íslenskukunnátta C1-C2 skv. samevrópskum matsramma fyrir tungumálakunnáttu.
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar