Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Verkefnastjóri

Vilt þú vinna í skapandi, fjölbreyttu og lifandi vinnuumhverfi?

Þá gæti þetta verið starf fyrir þig...

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum verkefnastjóra til starfa á skrifstofu stafrænnar Reykjavíkur. Verkefnastjóri kemur til með að stýra fjölbreyttum verkefnum sem hafa það að markmiði að takast á við áskoranir sem Reykjavíkurborg stendur frammi fyrir hverju sinni. Verkefnin sem verkefnastofan stýrir snúa m.a. að tækni og þjónustu fyrir íbúa og starfsfólk, og eru þau unnin í samvinnu við aðrar skrifstofur og svið borgarinnar.

Verkefnastjóri hefur faglega og fjárhagslega umsjón með sínum verkefnum, sér um upplýsingagjöf og samskipti við hagsmunaaðila, fundagerðir og skjölun. Verkefnastjóri starfar eftir innkaupareglum Reykjavíkurborgar og heldur utan um innkaup sem tengjast verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýring verkefna samkvæmt verklagi stafrænnar Reykjavíkur 
  • Fjárhagsáætlunargerð, verk- og tímaáætlanir, fundarstýring og skjölun
  • Leiða verkefnahópa og vinnustofur
  • Upplýsingagjöf og samskipti við hagsmunaaðila
  • Vinnsla og framsetning á efni og gögnum
  • Þarfagreiningar og áhættumat
  • Opinber innkaup
  • Innleiðing lausna
  • Önnur þau verkefni sem yfirmaður felur verkefnastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun og/eða vottun í verkefnastjórnun er kostur
  • Reynsla í faglegri verkefnastýringu
  • Reynsla og/eða þekking á áætlanagerð, þar með talið fjárhagsáætlanagerð
  • Reynsla af greiningu áskorana
  • Farsæl reynsla af teymisvinnu
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og geta til að vinna þvert á flóknar starfseiningar
  • Leiðtogahæfileikar, fagmennska og skipulagsfærni
  • Víðsýni, lausnamiðuð og skapandi hugsun
  • Góð tök á gerð og framsetningu efnis
  • Reynsla af opinberum innkaupum er kostur
  • Mjög góð íslensku og ensku kunnátta í rituðu og töluðu máli
Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á

  • Fyrsta flokks vinnustað
  • Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
  • Verkefni sem stuðla að því að einfalda og bæta líf starfsfólks og borgarbúa
  • Krefjandi og skemmtileg verkefni
  • Öfluga nýliðamóttöku
  • Sálrænt öryggi og skapandi menningu
  • Góða liðsheild og góð samskipti
  • Samkennd og virðing
  • Þekkingarumhverfi
  • Fjölbreytta þjálfun og möguleika á þróun í starfi
  • Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
  • Heilsueflandi vinnustað
  • Gott vinnuumhverfi
  • 30 daga í sumarleyfi
  • 36 stunda vinnuviku
  • Fyrsta flokks vinnuaðstöðu
  • Heilsu- og samgöngustyrk
  • Sundkort
  • Menningakort
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar