

Verkefnastjóri
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON) leitar að einstaklingi til að sinna fjölþættri þjónustu í þágu þeirra sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra.
KAON er félag til almannaheilla sem rekið er fyrir frjáls framlög frá almenningi og fyrirtækjum.
Leitað er að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem á gott með að vinna hvort sem er sjálfstætt eða í samstarfi við aðra. Viðkomandi vinnur náið með stjórn félagsins.
Starfsmenn KAON vinna sem teymi og ganga saman í þau störf sem þarf að leysa.
Um er að ræða starf sem skapar fjölbreytta renslu í góðu starfsumhverfi.
Setja upp og sjá um starfsemi í þágu félagsmanna.
Skipulagning viðburða.
Verkefni tengd fjármálum félagsins.
Upplýsingagjöf.
Samskipti við Krabbameinsfélag Íslands og önnur krabbameinsfélög
Jákvæðni, hlýlegt viðmót og góð færni í mannlegum samskiptum.
Skipulagsfærni.
Góð almenn tölvukunnátta.
Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti ásamt enskukunnáttu.
Hæfni til að vinna úr og miðla upplýsingum.
Katrín Júlía Pálmadóttir í síma 618-9569
Pétur Þór Jónasson í síma 863-8433
Íslenska
Enska










