
Verkefnastjóri
Viltu byggja upp vatnsaflsverkefni sem verða hluti af orkuinnviðum Íslands til framtíðar?
Hjá Arctic Hydro færð þú tækifæri til að leiða raunverulega uppbyggingu – verkefni sem fara alla leið frá fyrstu hugmynd að virkjun til fulls reksturs.
Félagið áformar að setja upp starfsstöð á Austurlandi og leitar að öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra til að leiða og móta starfsemina og framtíð vatnsafls í fjórðungnum.
Starfið er lykilhlutverk þar sem þú færð bæði ábyrgð og traust til að hafa áhrif. Þú vinnur að þróun nýrra orkukosta, stýrir framkvæmdum, byggir upp samstarf við hagaðila og tekur virkan þátt í rekstri virkjana. Hér er ekki um hefðbundið skrifborðsstarf að ræða, heldur tækifæri til að vera í fararbroddi sjálfbærrar orkuframleiðslu, vaxa með félagi í sókn og skilja eftir þig varanlegt spor í íslenskum orkuinnviðum.
- Leiða og annast verkefnastjórnun vatnsaflsverkefna Arctic Hydro á Austurlandi.
- Koma að stofnun og uppbyggingu starfstöðvar félagsins á Austurlandi.
- Þróun nýrra vatnsaflsverkefna, allt frá frumhugmynd til framkvæmdar og reksturs.
- Umsjón með verkefnum á byggingarstigi, þar með talið áætlanagerð, kostnaðareftirliti og eftirfylgni með verkframvindu.
- Samstarf við ráðgjafa, verktaka, landeigendur, sveitarfélög og aðra hagaðila.
- Þátttaka í rekstri og eftirfylgni með rekstri vatnsaflsvirkjana.
- Tryggja að verkefni séu unnin í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu félagsins.
- Regluleg upplýsingagjöf og skýrslugerð til stjórnenda og samstarfsaðila.
- Annað sem til fellur.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkfræði, tæknifræði, orkumála eða sambærilegu er skilyrði.
- Reynsla af verkefnastjórnun, helst á sviði mannvirkja, orkuframleiðslu eða sambærilegra verkefna.
- Þekking á framkvæmdum, hönnun og/eða rekstri orkuframleiðsluverkefna er kostur.
- Góð skipulagsfærni og hæfni til að vinna sjálfstætt og taka ábyrgð.
- Sterk samskiptahæfni og reynsla af samstarfi við ólíka hagaðila.
- Geta til að leiða verkefni frá hugmynd til framkvæmdar.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Drifkraftur, frumkvæði og áhugi á uppbyggingu sjálfbærrar orkuframleiðslu.
Íslenska
Enska










