Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi

Umsjónarmaður vöruhúss og geymslusvæða (Warehouse Manager)

Vilt þú vera hluti af framtíðinni í íslensku landeldi?

Við leitum að skipulögðum og ábyrgðarfullum umsjónarmanni vöruhúss og geymslusvæða til að taka þátt í uppbyggingu og rekstri nýs og glæsilegs landeldis sem nú rís í Auðlindagarðinum á Reykjanesi.

Sem umsjónarmaður vöruhúss hefur þú umsjón með aðföngum verkefnisins, móttöku og skráningu vara.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með vöruhúsi og birgðahaldi verkefnisins.
  • Móttaka, skráning og geymsla aðfanga og vara.
  • Afhending birgða á verkstað í samræmi við verkáætlanir.
  • Skipulag og viðhald á öryggi og vinnuumhverfi í vöruhúsi.
  • Framkvæmd lagerúttektar og skýrslugerð.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði birgðastýringar eða aðfangastjórnunar.
  • Hefur reynslu af vöruhússtörfum eða birgðahaldi.
  • Er skipulagður, nákvæmur og áreiðanlegur.
  • Hefur góða færni í notkun tölvukerfa og skráningu gagna.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur29. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Auðlindagarðurinn á Reykjanesi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar