Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi

Umsjónarmaður flutninga (Logistic Coordinator)

Vilt þú vera hluti af framtíðinni í íslensku landeldi?

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum umsjónarmanni flutninga til að taka þátt í uppbyggingu og rekstri nýs og glæsilegs landeldis sem nú rís í Auðlindagarðinum á Reykjanesi.

Sem umsjónarmaður flutninga berð þú ábyrgð á samhæfingu flutninga, dreifingu efna og mannafla á verkstað.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samhæfa flutninga aðfanga og mannafla á verkstað.
  • Skipuleggja og hafa umsjón með flutningi á efni og búnaði.
  • Stýra birgðastöðu og aðgengi að efni á verkstað.
  • Skipuleggja aðkomu, öryggisferla og úrgangsstjórnun.
  • Skjalagerð vegna innflutnings og tollameðferðar.
  • Umsjón með móttöku og skráningu tækja og búnaðar til verksins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur menntun sem nýtist í starfi.
  • Hefur reynslu af skipulagningu flutninga eða verkstaðastjórnun.
  • Er lausnamiðaður, skipulagður og getur unnið sjálfstætt.
  • Hefur góða tölvukunnáttu og færni í skjalavinnslu.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur29. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Auðlindagarðurinn á Reykjanesi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar