
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Flutningabílstjóri hjá Steypustöðinni
Steypustöðin ehf. leitar að sterkum, jákvæðum og áreiðanlegum bílstjóra með meiraprófsréttindi í starfsstöð Steypustöðvarinnar í Borgarnesi. Ef þú hefur gaman af akstri, vinnur vel undir álagi og hefur sterka öryggisvitund þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Starfið felst að mestu leyti í útkeyrslu framleiðsluvöru með vörubifreið og aftanívagni (trailer) og eru því meirapróf C og CE skilyrði. Einnig er æskilegt að umsækjandi hafi reynslu af slíkum akstri. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Kostur er að viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útkeyrslu á framleiðsluvöru
- Öryggis- og gæðameðvitund.
- Vera vakandi yfir gæðum efnis
- Vera vakandi yfir að vélbúnaður og tæki séu í lagi og tilkynna frávik yfirmanni
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf C og CE eru skilyrði
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Reynsla af akstri með aftanívagn
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Samviskusemi og stundvísi
- Reglusemi og snyrtimennska
Auglýsing birt11. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Engjaás 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiMannleg samskiptiMeirapróf CMeirapróf CEMetnaðurStundvísiSveigjanleikiÚtkeyrslaVöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Bílstjóri / Lestunarmaður
Vaðvík

Vélamenn og bílstjórar
Ístak hf

Bílstjórar (verktakar) óskast
Teitur

Standsetning og þrif / PDI and detailing
Porsche á Íslandi

Lagerstarfsmaður óskast
Hreinlætislausnir Áfangar ehf.

Starfsmaður í útkeyrslu
Umbúðir & Ráðgjöf

Sölu-/Þjónustufulltrúi Kerfi Fyrirtækjaþjónusta
Kerfi Fyrirtækjaþjónusta

Sumarstarf í Vegmerkingum (kröfur: C meirapróf)
Vegmerking

Störf í áfyllingu
Ölgerðin

Lagerstarf - Varahlutir - Bifreiðar
Vélrás

Strætó bílstjóri óskast
Hagvagnar

Meiraprófsbílstjóri
Skeljungur ehf