

Innkaupafulltrúi
Við leitum að ábyrgum aðila til að sinna starfi innkaupafulltrúa hjá Hilton Reykjavík Nordica. Starf innkaupafulltrúa heyrir undir yfirkokk hótelsins. Starfið felst m.a. í því að sjá um innkaup á hráefni, áhöldum og öðrum nauðsynjum fyrir rekstur hótelsins ásamt skráningum, talningum ofl. Í starfinu getur jafnframt falist að aðstoða í eldhúsi þegar þörf er á. Um vaktavinnustarf er að ræða.
- Ábyrgð á á öllum innkaupum hráefnis fyrir veitingadeild, áhöldum og fl. er tengist hótelrekstrinum
- Ábyrgð á samskiptum við birgja
- Eftirlit með birgðavörslu
- Eftirlit og eftirfylgni í að vörur séu í samræmi við pantanir er varðar gæði og magn
- Önnur tilfallandi verkefni
- Sveinspróf/meistarapróf í matreiðslu
- Góð tölvu, íslensku- og enskukunnátta
- Rík þjónustulund og vönduð framkoma
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvæðni og skipulögð vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og sveigjanleiki
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Gunnar Kristinssson, yfirkokkur, [email protected]
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð kyni, aldri eða uppruna.
Iceland Hotel Collection By Berjaya er fyrirtæki sem starfar í alþjóðlegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, sveigjanleika og frumkvæði í starfi. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur með sameiginleg markmið, þar sem borin er virðing fyrir gestum, samstarfsmönnum og náttúrunni.













