Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Birgðastjóri

Coca-Cola á Íslandi leitar að birgðastjóra á vörustjórnunasvið CCEP.

Við leitum að skipulögðum og ábyrgðarfullum einstaklingi í starf birgðastjóra á lager. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf með ábyrgð á birgðahaldi og þátttöku í daglegum rekstri vöruhúss. Birgðastjóri heyrir undir forstöðumann vöruhúss og dreifingu. Starfið myndi henta vel einstaklingi sem hefur nýlega lokið við háskólanám.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með birgðum og lagerstöðu 

  • Eftirlit með helstu mælikvörðum og umbætur tengdar þeim 

  • Samskipti við áætlunarteymi og framleiðslu 

  • Heimköllun á gámum með innfluttum vörum og hráefnum 

  • Talningar og birgðaleiðréttingar 

  • Þátttaka í umbótaverkefnum þvert á vörustjórnunarsvið 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegu námi er kostur 

  • Góð tölvukunnátta, reynsla af birgðakerfum er mikill kostur 

  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum 

  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund 

  • Reynsla af starfi á lager er kostur 

  • Leiðtogahæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði eru nauðsynleg 

  • Enskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg 

  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum 

Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur22. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Stuðlaháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar