Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi

Innkaupafulltrúi (Procurement assistant)

Vilt þú vera hluti af framtíðinni í íslensku landeldi?

Við leitum að kraftmiklum og lausnamiðuðum innkaupafulltrúa til að taka þátt í uppbyggingu og rekstri nýs og glæsilegs landeldis sem nú rís í Auðlindagarðinum á Reykjanesi.

Innkaupafulltrúi sinnir daglegum innkaupum, tekur þátt í að þróa innkaupakerfi og að stuðla að hagkvæmni í rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með innkaupum á vörum og þjónustu í samræmi við þarfir fyrirtækisins.
  • Samskipti og samningaviðræður við birgja, bæði innanlands og erlendis.
  • Undirbúningur og eftirfylgni innkaupapantana og vistun gagna í innkaupakerfi.
  • Mat og greining á innkaupum með tilliti til hagkvæmni, gæða og afhendingaröryggis.
  • Þróun og viðhald innkaupaferla, verklagsreglna og birgðakerfis.
  • Þátttaka í útboðsferlum, tilboðsöflun og úrvinnslu samninga.
  • Samvinna við fjármáladeild um kostnaðargreiningu og bókhaldsskráningu.
  • Eftirlit með framkvæmd samninga og árangursmælingum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Hefur reynslu af innkaupum, birgðastýringu og samningagerð
  • Hefur reynslu úr sjávarútvegi, tækniiðnaði eða byggingaframkvæmdum er æskileg.
  • Hefur færni í að greina kostnað og tryggja rekstrarlegt jafnvægi.
  • Býr yfir frumkvæði, sjálfstæði og öguðum vinnubrögðum.
  • Hefur góða færni í samskiptum og samstarfi.
  • Býr yfir góðri færni í notkun tölvukerfa, s.s. Excel og innkaupakerfa (t.d. DK, SAP eða Navision).
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli skilyrði.
Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur29. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Auðlindagarðurinn á Reykjanesi.
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar