Rubix og Verkfærasalan
Rubix og Verkfærasalan
Rubix og Verkfærasalan

Öflugur innkaupafullrúi hjá Rubix og Verkfærasölunni óskast

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt og skemmtilegt starf hjá framsæknu fyrirtæki þar sem samvinna og lausnamiðuð hugsun er í forgangi.

Innkaupafulltrúi ber ábyrgð á að tryggja skilvirk og hagkvæm innkaup fyrir fyrirtækið. Viðkomandi hefur umsjón með samskiptum við birgja, verðkönnun, samningagerð og að pantanir séu afgreiddar á réttum tíma í samræmi við þarfir fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast innlend og erlend innkaup í samræmi við innkaupastefnu fyrirtækisins
  • Finna og meta birgja, afla tilboða og semja um verð og skilmála
  • Viðhalda góðum samskiptum við birgja og aðra samstarfsaðila
  • Fylgjast með birgðarstöðu og tryggja rétt magn af vörum á réttum tíma
  • Svara fyrirspurnum og veita upplýsingar til viðskiptavina
  • Sjá um skráningu og breytingar á vörunúmerum 
  • Fylgja eftir pöntunum og tryggja afhendingu
  • Samskipti við tollayfirvöld og farmflytjendur
  • Þátttaka í öðrum tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af innkaupum, birgðastýringu eða sambærilegum störfum er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
  • Þekking á Business Central er kostur
  • Góð samskiptahæfni
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Þekking á tollamálum er kostur
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt4. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 32, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar