

Verkstjóri tengivirkjateymis
Framtíðin er ljós – viltu taka þátt í henni með okkur?
Við hjá Landsneti vinnum að því að byggja upp raforkukerfi sem mætir kröfum samtímans og er tilbúið fyrir áskoranir framtíðarinnar. Okkar hlutverk er mikilvægt – við tryggjum örugga og áreiðanlega raforkuflutninga um allt land. Nú leitum við að öflugum verkstjóra til að leiða tengivirkjateymi innan rekstrarsviðsins.
Sem verkstjóri tengivirkjateymis ert þú næsti yfirmaður hóp rafvirkja sem sinnir viðhaldi og rekstri tengivirkja Landsnets. Starfið felur í sér skipulag, verkstýringu og eftirfylgni við viðhaldsverkefni, ástandsskoðanir og aðrar tæknilegar úrbætur sem tryggja öruggan og hagkvæman rekstur kerfisins. Þú berð ábyrgð á ráðstöfun starfsfólks, verktaka og búnaðar og vinnur náið með öðrum teymum og sérfræðingum. Einnig felur starfið í sér ábyrgð á daglegum samskiptum, hvatningu og eftirfylgni við frammistöðu starfsfólks. Þú heldur frammistöðusamtöl, veitir leiðsögn og stuðlar að góðum starfsanda.
Við leitum að liðsfélaga sem er með
- Menntun í rafvirkjun eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af verkstjórn og vinnu við háspennu er æskileg
- Sterka öryggisvitund og skipulagshæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og sterka leiðtogahæfni













