Klettur -  sala og þjónusta ehf
Klettur - sala og þjónusta ehf
Klettur -  sala og þjónusta ehf

Verkstjóri verkstæðis í Hafnarfirði

Klettur leitar að verkstjóra til að stýra öflugu teymi á þjónustuverkstæði í Hafnarfirði. Verkstjóri sér um daglega starfsmannastjórnun á verkstæði og úthlutun verkefna. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í nýrri fyrirmyndaraðstöðu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stýring verkefna á verkstæði í samráði við verkstæðismóttöku
  • Úrlausn flóknari verkefna á þjónustuverkstæði í samráði við tæknistjóra
  • Þátttaka í áætlanagerð og afkomumælingum á þjónustuverkstæði
  • Útbúa áætlun um þjálfun starfsmanna í samráði við yfirmenn
  • Sjá um viðeigandi kynningu og þjálfun nýrra starfsmanna
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fullgild réttindi bifvélavirkja/vélvirkja
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Stjórnunarhæfileikar og rík þjónustulund
  • Áhugi á símenntun í greininni
  • Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegisverður.
  • Afsláttur af vörum félagsins.
  • Íþróttastyrkur.
  • Virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt10. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Einhella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar