Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli

Umsjónarkennari á miðstig óskast í Hörðuvallaskóla

Hörðuvallaskóli leitar að umsjónarkennurum á miðstig fyrir skólaárið 2024-2025.

Í Hörðuvallaskóla eru um 550 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 100 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf undir einkunnarorðunum það er gaman í skólanum og er uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar lögð til grundvallar í skólastarfinu.

Í Hörðuvallaskóla er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur og kennarar skólans með spjaldtölvur. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu, leiðsagnarnám og unnið er eftir samþættu verkefnamiðuðu þemanámi á miðstigi skólans.

Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is .

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla á miðstigi skólans og samvinna í 4-5 kennara teymi.
  • Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda.
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi.
  • Þekking og reynsla af uppeldi til ábyrgðar, leiðsagnarnámi og samþættu verkefnamiðuðu þemanámi.
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu máli og rituðu.
Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins

Auglýsing stofnuð26. apríl 2024
Umsóknarfrestur10. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Baugakór 38, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar