Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands

Þróunar- og fræðslustjóri

Þjóðminjasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar nýtt starf þróunar- og fræðslustjóra. Í boði er áhugavert og krefjandi starf með fjölbreyttum verkefnum fyrir metnaðarfullan einstakling þar sem reynir á teymisstjórn, frumkvæði, skapandi hugsun, ríka þjónustulund, og samskiptahæfni. Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi þar sem sköpun, fræðsla og varðveisla menningararfsins fléttast saman í hvetjandi og framsæknu umhverfi. Þróunar- og fræðslustjóri mun heyra undir framkvæmdastjóra þjónustusviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróa og móta ásýnd Þjóðminjasafnsins með sérstakri áherslu á að laða að yngstu gestina og stuðla að aukinni þátttöku þeirra

  • Byggja upp virkt fræðslunet Þjóðminjasafnsins sem höfuðsafns

  • Bera ábyrgð á miðlun og fræðslu, með áherslu á gerð efnis fyrir ólíka hópa

  • Bera ábyrgð á viðburðateymi ásamt fræðslu- og viðburðadagskrá og þróun hennar

  • Stjórna verkefnum tengdum mótun, endurnýjun og viðhaldi á grunn- og sérsýningum til að tryggja nýsköpun og gæði

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfið er skilyrði

  • Reynsla af verkefnastjórnun á sviði fræðslu í safni er kostur

  • Reynsla af mannaforráðum er kostur

  • Frjó og skapandi hugsun

  • Færni í mótun hugmynda og lausna

  • Góð samskiptahæfni og leiðtogafærni eru skilyrði

  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

  • Vald á Norðurlandamáli er kostur

  • Vönduð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar eru skilyrði

Fríðindi í starfi
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Stytting vinnuvikunnar
Auglýsing birt27. desember 2024
Umsóknarfrestur7. janúar 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Viðburðastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar