Verkefnisstjóri erlendra rannsóknastyrkja á styrkjastofu
Laust er til umsóknar fullt starf verkefnastjóra á styrkjaskrifstofu Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands. Styrkjaskrifstofa sinnir stuðningi við erlend rannsóknaverkefni, m.a. með ráðgjöf og eftirliti með samningum og fjármálum alþjóðlegra rannsóknarverkefna Háskóla Íslands og veita stuðning við skimun tækifæra og gerð umsókna.
Verkefnastjórinn hefur aðsetur á Vísinda- og nýsköpunarsviði í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og vinnur undir stjórn sviðsstjóra. Viðkomandi vinnur náið með fjármálasviði, rannsóknastjórum fræðasviða Háskólans og stoðþjónustu rannsókna á fræðasviðum. Starfið felur jafnframt í sér samstarf við rannsakendur við Háskóla Íslands sem og samstarfsaðila í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum og styrkveitendur. Markmið starfsins er að efla rannsóknir og vísindastarf við Háskóla Íslands með því að veita faglegan almennan stuðning, aðstoð og ráðgjöf.
- Umsjón og eftirlit með framgangi alþjóðlegra rannsóknarverkefna og/eða verkefnasafna Háskóla Íslands
- Fjárhagslegt uppgjör verkefna og yfirsýn yfir rekstrarstöðu verkefna
- Tryggja að farið sé að reglum styrkveitanda varðandi fjármál og önnur atriði sem tilgreind eru í styrk- og samstarfssamningum
- Samskipti við þátttakendur í rannsóknaverkefnum
- Aðstoð við gerð fjárhagsáætlana vegna umsókna um rannsóknastyrki
- Þátttaka í vinnuhópum og/eða teymisvinnu tengdum styrkjaumhverfi
- Meistaragráða sem nýtist í starfi
- Gott vald á upplýsingatækni, s.s. Excel og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
- Þekking á styrkjakerfi rannsókna og nýsköpunar og helstu alþjóðlegu rannsóknasjóðum (H2020, Horizon Europe, Nordforsk, NIH, EEA Grants, o.s.frv.) er kostur
- Reynsla af fjárhagsupplýsingakerfum er kostur
- Reynsla af fjárhagsuppgjöri er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Samstarfshæfni, nákvæmni, útsjónarsemi og sjálfstæði í vinnubrögðum