Dýraverndarsamband Íslands
Dýraverndarsamband Íslands

Starfsmaður Dýraverndarsambands Íslands

Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) leitar eftir starfsmanni. Starfshlutfall er 50% með möguleika á aukningu í framtíðinni. Starfsmaður starfar í umboði stjórnar og er formaður næsti yfirmaður starfsmanns.

DÍS er óháð samtök dýravina sem beita sér fyrir bættri velferð dýra með því að stuðla að málefnalegri umræðu og fræðslu um dýravelferð á opinberum vettvangi, standa vörð um lögvernd dýra og stuðla að góðu opinberu eftirliti með velferð dýra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkefni og störf  í umboði stjórnar og í samráði við formann. 

  • Greiningar- og hugmyndavinna. 

  • Ábyrgð á félagatali.

  • Ábyrgð á skjalavörslu og ferlum.

  • Símsvörun og tölvupóstsamskipti.

  • Umsjón með samfélagsmiðlum.

  • Umsjón með herferðum sambandsins. 

  • Viðburðastjórnun og undirbúningur funda.

  • Utanumhald og eftirfylgni verkefna og einstakra mála.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Góð ritfærni.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Útsjónarsemi og lausnamiðun.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

  • Einlægur dýravinur.

  • Reynsla af starfsemi félagasamtaka er kostur.

Auglýsing birt27. desember 2024
Umsóknarfrestur15. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar