Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarleikskóli

Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum þroskaþjálfa í fullt starf.

Skarðshlíðarleikskóli er nýr fjögurra deilda skóli, staðsettur að Hádegisskarði 1. Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindakenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.

Þar sem þetta er nýr leikskólinn færð þú tækifæri til að taka þátt í að móta námskrá leikskólans, búa til hefðir og starfa í nánu samstarfi við grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttahús og bókasafn, því við verðum öll í sömu byggingunni. Okkur er mikið í mun að skapa góðan og skemmtilegan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt að mörkum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH) er kostur
Reynsla af teymisvinnu æskileg
Færni í samskiptum og samstarfshæfni
Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur að uppeldi og menntun barns/barna með sérþarfir þar með talið að skipuleggja sérkennslu viðkomandi í samvinnu við sérkennslustjóra og deildastjóra
Gerir skriflegar einstaklingsnámskrár fyrir það barn/börn sem hann er með í stuðning
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn þess barns/barna sem hann er með í stuðning
Er leiðbeinandi fyrir annað starfsfólk varðandi stuðning við nemendur með sérþarfir
Vinna samkvæmt stefnu skólans
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Auglýsing birt29. apríl 2022
Umsóknarfrestur15. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar