Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Þjónustufulltrúi - Upplýsingamiðstöð HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir þjónustufulltrúa til starfa við Upplýsingamiðstöð HH. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi. Símsvörun og netspjallið er opið alla daga frá kl. 7 til 23 alla daga og er því um að ræða vaktavinnu á tímabilinu frá sjö að morgni til 23.

Upplýsingamiðstöð HH hefur þríþætt hlutverk:

Að þjónusta þau sem þangað leita hvort sem er í síma eða netspjalli á heilsuvera.is, þannig að málin séu leyst eða komið í viðeigandi farveg. Öllum erindum er sinnt hvaðan úr heiminum sem þau koma.

Skrifa, viðhalda og þróa þekkingarvef heilsuvera.is sem kemur á framfæri til almennings áreiðanlegri þekkingu um þroska, heilsu, áhrifaþætti heilbrigðis, sjúkdóma, frávik og einkenni.

Vinna ráðgjöf til ferðamanna vegna bólusetninga og bólusetja þau sem leita til bólusetningarmóttökunnar á Upplýsingamiðstöðinni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Símsvörun
  • Almenn upplýsingagjöf í síma og á netspjalli
  • Verkefni tengd bólusetningarmóttöku
  • Önnur tilfallandi störf á upplýsingamiðstöð HH
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af Sögukerfi æskileg
  • Þekking á Siteimprove, Webex og Livechat æskileg
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð færni í ritaðri og talaðri ensku og íslensku
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt13. september 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar