Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hefur þú ástríðu fyrir hjúkrun?

Heilsugæslan Efstaleiti leitar að hjúkrunarfræðingi í 80-100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Heilsugæslan Efstaleiti er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er heilsuvernd skólabarna ásamt hjúkrunarmóttöku.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. 

Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt6. september 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Efstaleiti 3, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar