Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Vesturmiðstöð auglýsir eftir hjúkrunarfræðing í heimahjúkrun

Vesturmiðstöð auglýsir lausa stöðu hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun í Vesturbyggð. Um er að ræða ótímabundið starf. Unnið er á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Starfshlutfall er samkomulag.

Unnið er eftir samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, félagsþjónustu og endurhæfingarteymis með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum.

Mikil þróunarvinna er á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Innleiðing velferðartækni ásamt sérhæfðum verkefnum sem tengjast þverfaglegu, hreyfanlegu öldrunarteymi, með það að markmiði að styðja enn frekar við sjálfstæða búsetu aldraðra í eigin húsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hjúkrunarþjónusta í heimahúsi í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar og þjónustuþega
  • Starfað er eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar
  • Framkvæmd og eftirfylgd hjúkrunaráætlana og skráning í Sögu
  • Virk þátttaka í teymisvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og reynsla af sjúkraskrárkerfinu SÖGU og RAI mælitækjum æskileg
  • Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Sveigjanleiki og lausnarmiðað viðhorf
  • Ökuréttindi B
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Íslenskukunnátta á bilinu B2-C2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort Reykjavíkur
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkur
Auglýsing birt11. september 2024
Umsóknarfrestur2. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar