

Teymisstjóri ræstingaþjónustu á Landspítala
Ræstingaþjónusta Landspítala óskar eftir öflugum aðila í starf teymisstjóra. Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi með háskólamenntun sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika. Um er að ræða 100% starf í dagvinnu og er starfið laust frá 1. júní 2026.
Ræstingaþjónusta Landspítala sér um að vinna eftir skipulagi sem tryggir að húsnæði spítalans (105.000 m2) sé til fyrirmyndar og gæði ræstinga séu í samræmi við skilgreind gæði. Teymisstjóri þarf að vera með próf í Insta 800 staðlinum og einstaklingsvottun, eða fá þau réttindi innan tveggja mánaða, ásamt því að sækja kennslu og vinna eftir hreinlætisstaðlinum DS 2451 10. Hann er skoðunaraðili og á að framkvæma skoðanir í samræmi við staðlana. Teymisstjóri ber ábyrgð á skipulagi úttekta í öllu húsnæði LSH ásamt því að stýra og taka þátt í ársfjórðungslegum skoðunum.
Teymisstjóri heyrir undir deildarstjóra ræstingaþjónustu og vinnur náið með ræstingastjórum og ber ábyrgð á að starfsemin gangi skilvirkt og samkvæmt áætlun. Teymisstjóri er virkur þátttakandi í teymi deildarinnar og tekur þátt í þeim verkefnum sem upp kunna að koma, í samráði við eða samkvæmt beiðni deildarstjóra. Hann kemur jafnframt að daglegu skipulagi í samstarfi við ræstingastjóra og veitir þeim stuðning við verkefni sem falla undir þeirra ábyrgð hverju sinni.
- Skipulag skoðana, vikulega á að skipuleggja auka skoðanir
- Ársfjórðungslega á að skipuleggja stærri skoðanir
- Samskipti við verktaka/framkvæmdaraðila
- Hreingerningar, skipulag og tíðni þeirra ásamt samþykki reikninga og eftirlit með kostnaði
- Ber ábyrgða á skipulagi sótthreinsiþrifa, hefur eftirlit með verklagi og árangri
- Vöktun á beiðnakerfi, Main manager og viðbrögð við beiðnum af öllum tegundum þegar þörf er á
- Leysir deildarstjóra af í fjarveru hans
- Stuðlar að stöðugum umbótum og framþróun þjónustu deildarinnar í samstarfi við starfsfólk
- Stuðlar að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi
- Gerð er krafa um háskólamenntun, grunnnám BA eða BS, sem nýtist í starfi
- Framhaldsnám er kostur
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa í teymi
- Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Hafa unnið við eða komið að skipulagi ræstinga á sjúkrahúsum
- Hafa unnið eftir gæðastöðlum í ræstingu eins og Insta 800 og DS-2451-10 eða sambærilegum stöðlum
Enska
Íslenska















































