Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu

Hjúkrunarfræðingur óskast til spennandi starfa í krabbameinsþjónustu Landspítala. Um er að ræða dagvinnu, með breytilegum vinnutíma í 80-100% starfshlutfalli, við hjúkrun sjúklinga í krabbameinsmeðferð/ þjónustu.

Samkvæmt spám mun sjúklingum fjölga mikið á næstu árum. Þetta kallar á nýja hugsun og nýjar lausnir í heilbrigðisþjónustu fyrir þennan sívaxandi hóp. Mikilvægt er að veita góða þjónustu og nýta starfskrafta hverrar fagstéttar vel og munu hjúkrunarfræðingar gegna stóru hlutverki í þessari þróun og ekki síður í veitingu þjónustunnar.

Við veitum fjölbreytta þjónustu við sjúklinga með krabbamein, bæði í lyfja- og geislameðferð og vinnum í virku teymi með öðrum fagstéttum. Margvísleg uppbygging og þróun hjúkrunar er fyrir þennan sístækkandi sjúklingahóp með gott flæði og samfellda þjónustu milli eininga með sjúklinginn í öndvegi. Við stundum einstaklingsmiðaða hjúkrun, með þátttöku fjölskyldunnar að leiðarljósi og styðjum vel við eflingu sérþekkingar í starfi.

Í boði er starf á:

  • Geislameðferðardeild 10K

  • Dag- og göngudeild 11B

  • Blandað starf á dag- og göngudeild 11B, lyfjameðferð og geislameðferð 10K

Við bjóðum upp á einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Að auki er á krabbameinsþjónustunni reglulega boðið upp á fræðslu fyrir starfsfólk. Á deildinni eru góðir möguleikar á fjölbreyttri starfsþróun og þátttöku í þróunarverkefnum í hjúkrun sjúklinga með krabbamein.

Upphaf starfa er 1. júní 2026 eða skv. samkomulagi. Næsti yfirmaður er deildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Þórunni, deildarstjóra.

Við búum yfir öflugum og skemmtilegum hópi starfsfólks. Öflugt félagslíf er innan krabbameinsþjónustunnar og leggjum við mikla áherslu á samheldni og góðan starfsanda.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hjúkrun sjúklinga í geislameðferð og krabbameinslyfjameðferð
  • Mat á líðan og einkennum, einkennameðferð, eftirlit og eftirfylgd
  • Greina hjúkrunarþarfir, veita hjúkrunarmeðferð og bera ábyrgð á meðferð skv. starfslýsingu
  • Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur spítalans
  • Veita markvissa fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
  • Stuðningur við sjúklinga og aðstandendur
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
  • Þátttaka og innleiðing nýjunga innan hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
  • Hæfni og geta til að vinna í teymi
  • Íslensku- og enskukunnátta áskilin
Auglýsing birt4. maí 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (25)
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali