Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Útgáfu- og miðlastjóri

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að ráða útgáfu- og miðlastjóra í fjölbreytt og líflegt starf. Útgáfu- og miðlastjóri gegnir lykilhlutverki innan Fíh og ber ábyrgð á sýnileika félagsins gagnvart félagsfólki og í opinberri umræðu. Starfið felur í sér ábyrgð á upplýsingamiðlun á vef- og samfélagsmiðlum auk ritstjórnar og útgáfu Tímarits hjúkrunarfræðinga.

Leitað er að aðila sem hefur ástríðu fyrir vandaðri miðlun upplýsinga og reynslu af fjölbreyttri útgáfustarfsemi. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að tileinka sér nýja þekkingu, takast á við fjölbreytt verkefni og vinna sjálfstætt. Kostur er að hafa þekkingu á hjúkrunarfræði og/eða heilbrigðisþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni
• Umsjón með efni og ritstjórn vefsíðu Fíh og samfélagsmiðla
• Umsjón með og þróun kynningarefnis fyrir vef, samfélagsmiðla, fréttabréf og annað efni
• Ritstjórn og útgáfa Tímarits hjúkrunarfræðinga
• Efnisöflun, skrif og ritvinnsla fyrir tímarit og aðra miðla félagsins
• Umsjón með útgáfu ársskýrslu og dagbók félagsins
• Gerð og eftirfylgni útgáfu- og kynningaráætlana
• Samskipti við fjölmiðla og miðlun upplýsinga til félagsfólks og almennings
• Umsjón með hlaðvarpi, myndatökum, myndvinnslu, auglýsingum og annarri framsetningu félagsins
• Eftirfylgni með samfélagsumræðu og málefnum sem varða félagsmenn
• Þátttaka í öðrum verkefnum tengdum útgáfu, kynningu og ímynd félagsins

Ábyrgð 
• Ábyrgð á ritstjórn, útgáfu og gæðum efnis í öllum miðlum félagsins
• Ábyrgð á samræmdri framsetningu og sýnileika félagsins
• Ábyrgð á útgáfu Tímarits hjúkrunarfræðinga, ársskýrslu og dagbókar
• Ábyrgð á samskiptum við fjölmiðla og upplýsingamiðlun
• Ábyrgð á birtingar- og kynningaráætlunum og eftirfylgni þeirra
• Ábyrgð á rekstri og fjármálum útgáfuverkefna í samráði við fjármálastjóra

Nánari upplýsingar veitir:
Helga Rósa Másdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í síma 540-6400 eða [email protected]

Umsóknarfrestur er til 11. maí 2026. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er fag- og stéttarfélag hjúkrunarfræðinga. Félagið þjónustar stærstu heilbrigðisstétt á Íslandi með um 5000 félagsmenn. Á skrifstofu félagsins starfa 9 manns á fagsviði, kjara- og réttindasviði og við aðra þjónustu við félagsmenn. Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins má finna á vef félagsins www.hjukrun.is

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. 

  • Mjög góð færni í textaskrifum, ritvinnslu og upplýsingamiðlun. 

  • Reynsla af ritstjórn, útgáfu eða fjölmiðlun æskileg. 

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. 

  • Góð almenn tölvukunnátta og færni í notkun vef- og samfélagsmiðla. 

  • Þekking á gerð kynningarefnis, samfélagsmiðlum og birtingaráætlunum. 

  • Þekking eða reynsla af myndvinnslu, grafík eða hlaðvarpsgerð er kostur. 

  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð. 

  • Mjög góð skipulagshæfni og hæfni til að vinna að mörgum verkefnum samtímis. 

  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni. 

Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar