
Menningarstofa
Menningarstofa Fjarðabyggðar var sett á laggirnar árið 2017. Hlutverk stofunnar er að efla menningarlíf sveitarfélagsins, styðja við listamenn og menningarstarfsemi og tryggja öllum íbúum aðgengi að öflugu menningarstarfi.

Verkefnastjóri Verkefnastjóri barnamenningar og tónlistar
Menningarstofa Fjarðabyggðar leitar að metnaðarfullum og skapandi verkefnastjóra í 50% starf með áherslu á barnamenningu og tónlistarstarf.
Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að efla þátttöku barna og ungmenna í listum og menningu, og styðja við uppbyggingu tónlistarlífs í sveitarfélaginu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með fræðsluverkefnum og tónlistaruppbyggingu
- Ábyrgð á BRAS áhersluverkefnum og samstarfi þeim tengdum
- Umsjón með skapandi sumarstörfum og listasmiðjum
- Umsjón með Söngvavör – tónlistarverkefni í leikskólum
- Umsjón með Upptaktinum – tónsmíðaverkefni barna og ungmenna
- Samvinna við skóla, kennara, listafólk og aðra hagaðila
- Þróun nýrra verkefna á sviði barnamenningar og tónlistar
- Þátttaka í kynningu og miðlun verkefna
- Almenn þjónusta og stuðningur við tónleikahald í Fjarðabyggð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði kennslu, tónlistar eða menningar er æskileg
- Reynsla af starfi með börnum og/eða tónlistarstarfi nauðsynleg
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Skapandi og fjölbreytt starf
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á menningarlíf barna og ungmenna
- Sveigjanlegt og styðjandi starfsumhverfi
Auglýsing birt23. apríl 2026
Umsóknarfrestur7. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiHeiðarleikiHugmyndaauðgiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSnyrtimennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri myndlistar, sýninga og viðburða
Menningarstofa

Technical Writer (Entry Level)
Pollard Digital Solutions

Mótaðu framtíð þekkingar með okkur - verkefnastjóri óskast
Háskólinn í Reykjavík

Project Portfolio Manager
Nox Medical

Rannsóknastjóri
Háskólinn á Akureyri

Verkefnastjóri á menntadeild
Landspítali

Verkefnastjóri
Orkuveitan

Hönnuður burðarvirkja
NNE Verkfræðistofa ehf

Ert þú hugmyndaríkur textasmiður?
Birtíngur útgáfufélag

Verkefnastjóri / Project Manager
Wisefish ehf.

Vörustjóri hugbúnaðarlausna
Landspítali

Verkefnastjóri viðhalds og framkvæmda
Kaldalón