
Dagar hf.
Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og saga okkar nær allt aftur til ársins 1980.
Við leggjum áherslu á að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar. Sérhæfing okkar byggir á áratuga reynslu, framsækni og frábæru starfsfólki. Við höfum einsett okkur að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum.
Starfsemin teygir anga sína víða um land, Dagar eru með fastar starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ.
Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið.
Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Vinnustaðurinn
Hjá Dögum starfa um 800 einstaklingar af mismunandi þjóðernum, með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Árangur okkar er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni okkar, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir okkar kunna að meta.
Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu.
Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk. Við liðsinnum okkar fólki að eflast og ná árangri og erum stolt þegar við sjáum það blómstra í lífi og starfi.

Sumarstarf í ræstingum á Búrfellssvæði / Summer replacement in Cleaning in Búrfell area
Dagar leita að starfskrafti í sumarafleysingar í ræstingum á starfsstöðvum Búrfells. Vinnutími er frá 9-18. Viðkomandi þarf að hafa bílpróf og geta hafið störf sem fyrst.
Dagar is looking for a temporary summer replacement worker in cleaning at the Búrfell facilities. Working hours are from 9:00 to 18:00. The applicant must have a driver’s license and be able to start work as soon as possible.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg ræsting
Cleaning
Menntunar- og hæfniskröfur
- Ensku kunnátta
- Bílpróf
- Hreint sakavottorð
- Proficiency in English
- A valid driver’s license
- A clean criminal record
Auglýsing birt4. maí 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Búrfellsvirkjun 166701, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðÖkuréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Afleysingastörf í ræstingum / Cleaning substitute positions
Dagar hf.

Sumarstarf Bílaþrif / Car Cleaning Summer
Rent.is

Sumarafleysing - staða konu í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
Eyjafjarðarsveit

Starfsmaður við þrif íbúða
Byggingafélag námsmanna

Housekeeper / Guesthouse Assistant
Óðinn Akureyri ehf.

Kjörbúðin Eskifirði sumarstarf
Kjörbúðin

ACCOMMODATION MANAGER - HOTEL
Hótel Dyrhólaey

Sumarstörf við Ræstingar / Cleaning Service
iClean ehf.

Cleaning Camper Vans
Campeasy

Gæludýr.is AKUREYRI
Waterfront ehf

Skólaliði og frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Störf í ræstingum/ Cleaning jobs
Nói Síríus