OK
OK
OK

Tæknimaður í fjar- og vettvangsþjónustu

Opin Kerfi leitar að áhugasömum einstakling til að bætast við frábært teymi okkar í fjar- og vettvangsþjónustu.

Um er að ræða fullt starf á dagtíma.
Starfið hentar einkar vel þjónustuliprum einstaklingum sem eru færir í að rýna til gagns, hafa brennandi áhuga á upplýsingatækni og eiga auðvelt með samskipti við viðskiptavini hvort sem er í síma eða í eigin persónu.

Hjá Opnum Kerfum starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við alla sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Menntunar- og hæfniskröfur
Nám í kerfisstjórnun, sveinspróf í rafeindavirkjun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af tölvuumsjón er kostur
Hreint sakavottorð er skilyrði
Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
Gagnrýnin hugsun
Geta til að vinna í hóp og vera hluti af teymi
Góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur útstöðva og annarra jaðartækja
Flokkun verkbeiðna og símsvörun
Umsýsla og aðstoð með Microsoft 365 umhverfi
Þjónusta við viðskiptavini bæði í fjar- og vettvangsþjónustu
Önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt17. nóvember 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar