

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir metnaðarfullum einstaklingi til að taka að sér fjölþætt starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs sem er nýtt fagsvið hjá sveitarfélaginu. Sviðsstjóri veitir sviðinu faglega og stjórnunarlega forystu og starfar í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og lög og reglugerðir er varða starfsemina. Sviðsstjóri er mótandi í starfi sínu og hefur frumkvæði að notendamiðaðri þjónustu og lausn verkefna er varða farsæld barna og velferð íbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veitir sviðinu faglega, stjórnunarlega og rekstarlega forystu og ber ábyrgð á starfsemi þess
- Ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlunum fjölskyldusviðs
- Umsjón með starfsemi nefnda og hefur yfirsýn í málaflokkum sviðsins
- Hefur eftirlit með framkvæmd samninga sem í gildi eru og heyra undir sviðið
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur á fjölskyldusviði
- Samskipti við bæjarstjórn, bæjarráð, fastanefndir sveitarfélagsins á vettvangi málaflokkanna, önnur sveitarfélög, stofnanir og aðra hagaðila
- Kemur að mótun og framfylgir stefnu sveitarfélagsins í skóla-, frístunda- og velferðarmálum
- Stuðlar að umbótaverkefnum á sviðinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Framhaldsmenntun tengd starfsvettvangi sviðsins er æskileg
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og störfum hjá sveitarfélagi er kostur
- Reynsla af stjórnun, stefnumótun og mannauðsmálum er kostur
- Reynsla af gerð fjárhagsáætlana og rekstrarstjórnunar er æskileg
- Góð þekking á helstu málaflokkum fjölskyldusviðs
- Leiðtoga-, samstarfs- og samskiptahæfni
- Skipulagsfærni og forgangsröðun verkefna
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
- Metnaður til að ná árangri í starfi
Auglýsing birt11. júní 2025
Umsóknarfrestur27. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Iðndalur 2, 190 Vogar
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFjárhagsáætlanagerðFrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiOpinber stjórnsýslaSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStarfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri umbóta og upplýsingamála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Vaktstjóri í kerskála
Norðurál

Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Sveitarfélagið Vogar

Framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga
Landssamband veiðifélaga

Myllubakkaskóli - Skólastjóri
Reykjanesbær

Nefndarmaður í yfirskattanefnd
Fjármála og efnahagsráðuneytið

Lögfræðingur á sviði trygginga
Sjúkratryggingar Íslands

Lögfræðingur
Neytendastofa

Forstöðumaður þróunar- og þjónustusviðs
Ferðamálastofa

Deildarstjóri reksturs vatnsmiðla
Veitur

Skólastjóri - Hamranesskóli
Hafnarfjarðarbær

Yfirlögfræðingur
Reitir fasteignafélag